Niðurstöður úr fyrra söluferli grunnorku
Niðurstöður úr fyrra söluferli grunnorku
22. júní 2026 - Niðurstöður úr söluferli Vonarskarðs á grunnorku liggja nú fyrir. Í boði var ein tegund grunnorkusamninga með afhendingu frá upphafi júlí 2026 til loka júní 2027.
Kaup- og sölutilboð bárust í um 333 GWst af raforku fyrir um 1.746 milljónir króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 21.462 MWst af raforku fyrir um 132,0 milljónir króna.
Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.