28. maí 2026 - Vonarskarð hélt í dag fyrsta söluferlið með álagsblokkir sem eru ný tegund raforkusamninga. Álagsblokkir eru rafmagn sem afhent í mánuð í senn. Afhendingin fer eingöngu fram frá kl. 8 til kl. 20 á fyrirfram tilgreindum álagsdögum sem eru að jafnaði vinnudagar en hvorki frídagar né helgar. Því til viðbótar geta aðrir dagar verið undanþegnir frá afhendingu t.d. dagarnir milli jóla og nýárs. Nánari lýsingu á álagsblokkunum ásamt dagsetningum á álagsdögum er að finna hér.
Í þessu fyrsta söluferli voru sjö tegundir álagsblokka í boði þar sem afhendingartími lengsta samningsins var í desember 2026. Í söluferlum í framhaldinu verða samningar fyrir næstu tuttugu mánuði í boði.
Kaup- og sölutilboð bárust í um 97 GWst af raforku fyrir um 558 milljónir króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 1.697 MWst af raforku fyrir um 11 milljónir króna.
Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.