Niðurstöður úr síðara söluferli grunnorku
Niðurstöður úr síðara söluferli grunnorku
27. apríl 2026 - Niðurstöður úr síðara söluferli Vonarskarðs á grunnorku liggja nú fyrir. Í boði voru fimm tegundir grunnorkusamninga þar sem afhendingartími lengsta samningsins var árið 2031.
Kaup- og sölutilboð bárust í um 2.188 GWst af raforku fyrir um 16.482 milljónir króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 100.805 MWst af raforku fyrir um 695,8 milljónir króna.
Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.