Niðurstöður úr fyrra söluferli grunnorku
Niðurstöður úr fyrra söluferli grunnorku
27. apríl 2026 - Niðurstöður úr söluferli Vonarskarðs á grunnorku liggja nú fyrir. Í boði var ein tegund grunnorkusamninga með afhendingu frá upphafi júlí 2026 til loka júní 2027.
Kaup- og sölutilboð bárust í um 206 GWst af raforku fyrir um 1.458 milljónir króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 17.520 MWst af raforku fyrir um 97,4 milljónir króna.
Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.