Niðurstöður úr síðara söluferli grunnorku
Niðurstöður úr síðara söluferli grunnorku
23. mars 2026 - Niðurstöður úr síðara söluferli Vonarskarðs á grunnorku liggja nú fyrir. Í boði voru fimm tegundir grunnorkusamninga þar sem afhendingartími lengsta samningsins var árið 2031.
Kaup- og sölutilboð bárust í um 2.036 GWst af raforku fyrir um 13.914 milljónir króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 169.716 MWst af raforku fyrir um 1.108,4 milljónir króna.
Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.