Um Vonarskarð

Vonarskarð ehf. rekur raforkumarkað Íslands samkvæmt leyfi umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins frá 20. desember 2023. Um reksturinn gilda ákvæði 18. gr. a. raforkulaga nr. 65/2003. Orkustofnun hefur eftirlit með því að fyrirtækið fullnægi þeim lagaskilyrðum sem gilda um rekstur raforkumarkaðarins.

Stjórnun og eignarhald

Framkvæmdastjóri Vonarskarðs er Björgvin Skúli Sigurðsson. Vonarskarð er dótturfélag Bolmagns ehf. sem er í eigu Björgvins Skúla og Kristínar Friðgeirsdóttur.