Niðurstöður úr síðara söluferli grunnorku

26. maí 2025 - Niðurstöður úr síðara söluferli Vonarskarðs á grunnorku liggja nú fyrir.  Í boði voru fimm tegundir grunnorkusamninga þar sem afhendingartími lengsta samningsins var árið 2030.

Kaup- og sölutilboð bárust í um 2.940 GWst af raforku fyrir um 24.593 milljónir króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 255.792 MWst af raforku fyrir um 1.798,9 milljónir króna. 

Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.

Aftur á forsíðu.