Niðurstöður úr fyrsta söluferli viðhaldsblokka
14. ágúst 2026 - Vonarskarð kynnir viðhaldsblokkir sem nýja tegund af samningum til viðskipta á raforkumarkaðnum. Viðhaldsblokkum er ætlað að mæta þörfum vinnsluaðila vegna skipulegs viðhalds á virkjunum. Söluferli viðhaldsblokka er haldið fyrir nafngreint sölufyrirtæki sem óskar að kaupa rafmagn eftir tilgreindri áætlun.
Fyrsta söluferli viðhaldsblokka var haldið fyrir Orku náttúrunnar í tengslum við fyrirhugað viðhaldsstopp í Nesjavallavirkjun í september og október. Í boði voru tvær aðskildar blokkir með afhendingu í september og október.
Kaup- og sölutilboð bárust í um 38 GWst af raforku fyrir um 316 milljónir króna. Viðskipti náðu ekki lágmarksmagni í öllum blokkum. Af þeim sökum áttu sér engin viðskipti stað í söluferlinu.
Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.
