Niðurstöður úr söluferli grunnorku

27. október 2025 - Niðurstöður úr söluferli Vonarskarðs á grunnorku liggja nú fyrir.  Í boði voru fimm tegundir grunnorkusamninga þar sem afhendingartími lengsta samningsins var árið 2030.

Kaup- og sölutilboð bárust í um 1.899 GWst af raforku fyrir um 13.195 milljónir króna. Alls áttu sér stað viðskipti með 87.340 MWst af raforku fyrir um 591,5 milljónir króna.

Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.

Aftur á forsíðu.