Niðurstöður úr síðara söluferli grunnorku

23. júní 2025 - Niðurstöður úr síðara söluferli Vonarskarðs á grunnorku liggja nú fyrir.  Í boði voru fimm tegundir grunnorkusamninga þar sem afhendingartími lengsta samningsins var árið 2030.

Kaup- og sölutilboð bárust í um 3.515 GWst af raforku fyrir um 26.898 milljónir króna.  Alls áttu sér stað viðskipti með 670.937 MWst af raforku fyrir um 4.521,3 milljónir króna. 

Ítarlegar niðurstöður söluferlisins má nálgast hér.

Aftur á forsíðu.